|
|
19.07.2006 20:51:00 / lindag
Kveðjum blog.central og hefjum nýtt blogg á
123.is/101x
endilega kíkið á nýju síðuna og linkið okkur ) þar
eru komnar inn nýjar myndir frá Hellu
www.123.is/101x
»
18.07.2006 09:16:44 / lindag
Við eigum afmæli í dag - við eigum afmæli í dag


»
17.07.2006 21:04:46 / lindag
Kominn heim heil á höldu frá Hellu. Þvílíkt veður
sem var um helgina. Já það rigndi eins og enginn væri
morgundagurinn og rokið var alveg svakalegt þarna líka
á köflum. Komum þarna um 8 leytið á föstudaginn, í
fínasta veður, hentum saman fellihýsinu og komum okkur fyrir.
Laugardagurinn fór svo bara í torfæruna en Elvar og co voru
að aðstoða Gunnar rauða sem var að keppa.....við vorum því
bara í áhorfendastæðunum, og mátti stundum hafa okkur öll við
útaf veðri. En maður svosem vissi alveg hvernig spáin yrði um
helgina, og var því við öllu búinn, já það var sko enginn
blautur eða kaldur, svo þetta var bara allt hið besta. Maður
lætur nú ekki veðrið stoppa sig við að fara í útilegu. maður
býr nú á Íslandi
Ég var nú eitthvað að þykjast horfa á keppnina,
minnti mig óneytanlega á þegar maður fór á fótboltaleik í
gamla daga, en missti alltaf af mörkunum því maður var alltaf
að spjalla svo mikið við næsta mann....hehehe já tíminn
fór nú aðallega í það hjá mér og Lilju allaveganna,
en okkur tókst nú samt að horfa eitthvað á keppnina, það
sem var hvað slakast við þessa keppni var hvað hún var
löng, og ekkert action gerðist. Hver heldur bílakeppni sem
stendur frá 12 á hádegi til 8 um kvöldið.....enginn velta, og
enginn áhætta tekinn hjá köllunum sem voru að keppa. Þetta
myndi ég segja að væri deyjandi sport, enginn endurnýjun á
bílum og keppendum, en það er svo sem bara mín
skoðun......
Myndirnar voru ófáar, og við hendum þeim inn
fljótlega. var að hugsa um að henda inn einni grettumynd af
mér, bara ef vel liggur á mér - en allar myndirnar á
föstudagskvöldi voru í formi grettu....heheh stundum veit ég
ekki hverskonar vitleysu mér dettur í hug þegar maður er
kominn í glas 
»
13.07.2006 22:10:41 / liljag
Þegar ég
kom heim frá USA þá keypti ég mér eitt stykki ipot sem er svo
sem ekki frásögufærandi nema hvað að núna 3.vikum seinna þá
var ég fyrst núna að setja uppsetningardiskinn í tölvuna mína
og skrifa diskanna mína sem ég keypti úti inn á tölvuna mína
til að setja inn á ipotinn. Við erum að tala um svona
klassiska diska eins og
- Pussicat
dolls
- Pink
- Rihanna
- Kelli clarkson
Já eða með öðrum orðum svona ekta
píkutónlist. Einnig downloudaði ég fínu forriti sem heitir limewire
og þar get ég sko "stolið" tónlist eins og ég vil og forritið er
einkar auðvelt í notkun. Það er alveg ljóst hvað ég verð að gera um
helgin .... downlouda
»
12.07.2006 19:24:38 / liljag

Gaman að fylgjast með Magna á
skjánum. Eins og kannski flestir vita þá elska ég raunveruleika
þætti þannig að ég læt nú Rockstar supernova ekki fram hjá mér
fara. Verst að þættirnir eru svo helv. seint á kvöldin að ég næ
ekki að vaka allan þáttinn. Ég verð bara ein af þeim sem horfi á
endursýninguna .. eins og það er nú skemmtilegt. Einnig er hægt að
skoða alla söngvaranna á www.rockstar.msn.com
Eina sem ég vona að Magni komist
eitthvað áfram og að söngvarinn nýji sé jafn andskoti sætur eins og
sá fyrri

»
11.07.2006 15:15:13 / liljag
Núna styttist í
að mamma og pabbi fái sumarbústaðinn sinn afhentan, eru
reyndar búin að gera eitthvað smá fyrir utan og taka til
þannig að það þurfi ekki að gera jafn mikið af slíku þegar
þau fá hann afhentan. Pabbi er nefnilega með svona "veiki"
sem lýsir sér þannig að það þarf alltaf að gera hlutina
strax, ekki seinna í dag, ekki á morgun heldur strax þannig
að hann er eiginlega ekkert að geta beðið eftir að stinga
penslinum í málningu og fara að mála en
þeir sem þekkja pabba vita að hann er
málningaróður.
 
Ég held að þau komi til með að hafa
það alveg ógeðslega gott þarna í sveitinni svona í ellinni hehehe.
Annars verð ég bara að segja til hamingju Gróttu strákar með
4.sætir á pollamótinu um helgina en pabbi er að þjálfa old boys
strákanna í fótbolta .. já okei hann er amk einhversskonar
liðstjóri en hann er samt alveg harður kallin. Það er valið maður
vetrarins, markaðsskori, fallegasta markið
o.s.frvs en það er virkilega alvara í þessu hjá þeim
köppum.
Later
»
10.07.2006 14:16:06 / lindag
Fínasta
helgi afstaðinn. Skellti mér á Vegó á föstudaginn með
vinnufélögunum. En var kominn snemma heim, því ég þurfti að
vinna á laugardaginn hjá pabba og svo ætluðum við útúr bænum
strax eftir það. Þetta gékk allt saman eftir, og við vorum lögð
af stað rétt uppúr 3. Við vorum sumsé á leiðinni á Arnarstapa á
snæfellsnesi. Vá hvað þetta er langt, hefði ekki trúað því að
maður væri alveg tæpa 3 tíma að keyra þangað.
Ofsalega
fallegur staður, en rokið var alltof mikið þarna, þvílíkt
rokrassgat, var ekki alveg að fíla það. Við vorum sem betur fer í
fellihýsi hjá tengdó svo maður var nú bara inni í
hlýjunni.
Við
áttum eftir að lenda í þvílíkum ævintýrum um nóttina, útaf rokinu
en það byrjaði nú þannig að allt sem var úti, var að fjúka fjandans
til. Lilla sem var á húsbílnum, vakti liðið og allir út að bjarga
því sem var ekki fokið, fortjaldið hjá tengdó var t.d að fjúka af,
og allir hlutirnir svosem tjaldstólar og borð, var farið til
fjandans. Gústi og tengdamamma voru þau einu sem vöknuðu hjá okkur,
prinsessan ég var bara í mjakindum mínum sofandi – já það hefði sko
verið hægt að stela mér og öllum vagninum og ég hefði sko ekki
rumskað – gústi skyldi bara ekki hvernig ég fór að því að sofa bara
í þessum látum. Á sko ekki vandræðum með að sofa eins og flestir
vita, ég get sofnað hvenær sem er og hvar sem er ) Tengdapabbi
var eitthvað svo þreyttur það eina sem kom útúr honum var “” hvað
gengur eiginlega á “” og svo bara var hann aftur farinn að sofa
J
Þetta
bjargast svo allt saman á endanum, og var mikið hlegið yfir þessu
þegar hópurinn var vaknaður. Fellihýsið þeirra er náttúrulega bara
snilld, og það verður ansi erfitt að fara í tjald næstu helgi. En
þá vonast ég til þess að komast útúr bænum alla helgina
»
07.07.2006 20:26:34 / lindag
Loksins sést til sólar á
íslandi – já það virtist bara duga að blogga um rigningu og
leiðinlegt veður til þess að sólin léti loksins sjá
sig. Vá hvað maður verður
allur léttari í lund , þegar sólin skín á
mann.
Ferðahelgi framundan,
og maður ætlar að skella sér í smá útilegu – förum reyndar ekki
fyrr en á morgun, gistum bara eina nótt, en maður
hreinlega Verður bara að komast
eitthvað útúr bænum og í sveitina )
Annars bara ótrúlega
mikið að gera hjá mér í júlí – þ.e.a.s allar helgar bókaðar í
eitthvað action. Svo er það auðvita afmælið okkar sem lendir
að þessu sinni á Þriðjudegi – 18 júlí hefur
Hingað til alltaf verið
sól og sumarveður og vonum að það verði enginn undantekning
þetta árið
»
05.07.2006 15:48:33 / liljag
Hvað er málið með þetta veður sem er að hrjá okkur þessa
daganna. Ég fer til útlanda í tæpar 3.vikur og það var víst rigning
nánast allan tíman hérna heima.Núna er ég búin að vera heima í
tæpar 2.vikur og það er búið að vera rigning allan tíman. Maður
kemmst þá ekki eins í þetta sumarskap eins og maður varbúin að
ákveða .. með bjór, grill og góðan félagskap öll kvöld í sumar.
Útileigurnar verða að bíða betri tíma þar sem ég nenni bara ekki
að fara í tjaldútileigu þegar það er svona veður til þess að vera
með allt blautt. Maður keyrir á staðinn í stresskasti vegna þess að
maður verður að koma á staðinn fyrstur allra (hvað er eiginlega
málið með það) tjaldar, húkir inn í tjaldi til að verða ekki
blautur, reynir að drekka í sig hita, sofnar allt of fullur og
vaknar grautþunnur og blautur... hverjum finnst það
skemmtilegt.
Allaveganna .. þið sem ætlið í útileigu um helgina, have fun og
munið eftir pollagalla.
»
03.07.2006 20:14:20 / lindag
Tattoo þetta er
eitthvað sem er búið að vera ofarlega í huga mínum lengi vel,
langar alveg gríðalega mikið í eitt/tvö tattoo, og er myndin
alltaf að skýrast betur og betur, þ.e.a.s hvað mig langar í.
En ég virðist hvergi finna réttu myndina, veit hreinlega ekki
hvað ég á að gera þar sem ég kann engan veginn að teikna, þá
reynist þetta mér ansi erfitt. Ég held að það endi bara með
því að ég fari inná http://www.icelandtattoo.com/page.asp?pageID=9
og láti hann Búra teikna fyrir mig
eitt lítið tattoo sem ég get verið sátt
við.
Hann einmitt tattoveraði Gústa
minn. Hann fékk sér djöful á löppina, á hliðina sumsé, en
Gaui og Matti félagar hans eru með eins Tattoo. En þetta er
einmitt merki Jeppaklúbbsins sem hann er í. Og heita þeir því
hátíðilega nafni “” fjalladjöflar
“”
Þegar hann var
búinn að setja myndina á fótinn, þá vildi Búri bara að ég
myndi fá mér eitt slíkt líka, bara minni djöful, hmmm…..ég
barasta held ekki, hérna sjáið þið einmitt mynd af Djöflinum.
Ekki mjög kvenlegur eða hvað ?

Já hvað skal
gjöra, ég veit að mútta mín og pabbi eru nú ekki sátt við
að mig skuli langa í tattoo ) en það er ágætt að maður
undirbúi þau bara strax undir hvað koma
skal…........
»
02.07.2006 21:08:24 / liljag
Loksins
setti ég myndir inn á netið, undir Florída 2006
»
01.07.2006 00:33:31 / lindag
hæ hó -
ég barasta verð að deila með ykkur snilldar síðu sem hún
Árdís fann á netinu - já ég bara varð að stela þessu hjá
henni. þetta er síðan hennar Anouk söngkonu, hún
hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér undanfarið. Lagið
Nobody's Wife (American) er sko besta lag sem samið hefur
verið hehee já stór orðinn látinn falla - en ég hvet ykkur
til að kíkja á síðuna hennar http://www.anouk.com/
Einnig hef ég
bætt við tveim vinnufélögum inná bloggið mitt, það er einmitt hún
Árdís sem er algör rokkari og hann Valþór sem er endalaust
óheppinn....hvet ykkur til að lesa blogginn þeirra......
Veit fyrir víst að það styttist ansi
vel í myndirnar frá Orlando - hún Lilja skvís er með allar
myndirnar sem voru teknar á litlu vélina og hún var að renna í
gegnum þær í kvöld, ansi mikið magn sem var tekið, svo það þarf að
velja þær myndir sem eru internet vænar og skella þeim
inn............ Blikka hana á morgun og sjáum hvort að þetta komist
ekki inná netið um helgina.
»
29.06.2006 18:56:41 / liljag
Aðalferðahelgin að renna í garð. Ég hef aldrei farið
neitt fyrstu helgina í júli þar sem ég fer alltaf
jónsmessuferð í þórsmörk helgina áður. Þrátt fyrir að ég hafi
ekki farið í þórsmörk um jónsmessuhelgina þetta árið sökum
utanlandsaferðar þá fer ég ekkert að breyta út af vananum
þetta árið eða hvað?
  
En þið sem
ætlið út úr bænum endilega skemmtið ykkur vel í
"rigningunni"
»
28.06.2006 14:11:20 / lindag
Back to
work, jamm er kominn í vinnuna. Sem mér finnst reyndar bara
fínt.....jamm þið heyrðuð rétt, mér finnst gott að komast í
vinnuna - komast aftur í rútínu, og bara hitta
vinnufélaganna. Var að drepast úr leiðindinum ein heima í
gær, það er nefnilega ekkert gaman að vera einn í sumarfríi.
Náði reyndar að taka allt saman uppúr töskum og henda heilum
fataskáp, já ég held að ég hafi bara endurnýjað nánast allan
fataskápinn minn. Sem manni finnst auðvita alls ekki
leiðinlegt.....hihihih
Annars er
hugurinn alveg enn í útlöndum, og manni langar bara aftur út á
morgun helst......en íslandið er nú líka alveg ágætt, hlakka bara
til að komast í Þórsmörkina og svona í sumar.
Ef að sólin
skín um helgina, þá er aldrei að vita nema að maður skáli í
Cosmopolitan eins og maður gerði á Florída.....nammi namm, ekkert
smá gott - pínu sterkur þarna úti, en vá ekkert smá góður SKÁL
FYRIR ÞVÍ

»
26.06.2006 16:47:53 / lindag
Jæja best að skella inn smá ferðsögu - ætla nú ekki
að hafa hana neitt rosalega langa þar sem það var gert svo
mikið og þetta er svosem alltaf það sama, sól, drekka bjór,
verslað og bara haft það gaman.
ferðin gékk rosavel í alla staði, við vorum í húsi
sem var alveg svakaleg flott og stórt, 3 herbergi og tvö
baðherbergi, með stóru og góðu eldhúsi og stofu, svo ekki
yfir neinu að kvarta ) íslendingar voru þarna á hverju
strái og allir auðvita í golfi, nema við, jamm við fórum ekki
í golf þarna, heldur skelltum við okkur nokkrum sinnum í
mínígólf, já jón og pabbi voru orðnir ansi góðir í því, enda
skiptu þeir með sér sigur sætinu......við hin rákum svo
lestina oftast.
Það var semsagt mottó ferðarinar að búa til keppni
úr öllu saman, og var það orð óspart notað "" eigum við að
koma í keppni "" já þar sem við stelpurnar höfum ekki mikið
keppnisskap, þá létum við strákana bara um það að metast. Það
voru líka ansi margar fleygar setningar sem komu fram eins og
"" ég er að segja þér það "" er gjörsamlega kominn með það á
heilan og svo líka "" oh my good "" en það kom eftir að Axel
Garðar sem er 7 ára var að fara í fyrsta skipti í flugvél og
við vorum að því kominn að lenda, vélin að lækka flugið og þá
heyrðist í mínum "" oh my good "" því hann fékk svo mikinn
fiðring í magan...hihih já þið kannist við þetta, það var
allt svo nýtt og skemmtilegt, þar sem hann var að fara í
fyrsta skipti til útlanda. Ég kem nú með skemmtilegar sögur
af litla manninum, en hann átti heldur betur eftir að slá í
gegn....hihih nú auðvita Andri bróðir hans líka

Maður auðvita stóð við sitt og verslaði helling,
enda fengum við nokkrum sinnum rigningu og horrican eins og
kom fram á fyrra bloggi, svo maður nýtti bara tíman í
mollunum á meðan. Já kílóin 23 sem taskan má vigta voru sko
fljót að fyllast, enda Gústi auðvita með fulla tösku af
varahlutum og verkfærum, eins og svo oft áður. Já ég held að
hann sé nú að mettast af verkfærum loksins....hihih við
þurftum að bæta við tösku vegna mikils farangurs, og
töskurnar voru orðnar ansi þungar á leiðinni heim, en við
ákváðum að láta reyna á þetta, fara bara með töskurnar of
þungar og sjá hvað gerist.
Vitir menn við þurftum að forfæra á milli -
töskurnar hjá mér og Gústa voru hreinlega of þungar, og til
að sleppa við að borga yfirvikt þá vildi konan að við myndum
færa á milli sem við og gerðum, jamm taskan opnum þarna á
miðju gólfinu með 100 mans í röðinni og við að setja
farangurinn í töskurnar hjá Lilju og Jóni, sjétt
hvað ég var snögg að því, og þetta sem betur fer slapp, þar
sem Lilja og Jón höfðu enn pláss í töksunum sínum. hehehe
þetta var nú meira ævintýrið......en þetta var líka það eina
sem kom fyrir á flugvellinum, enginn var tekinn í tollinum,
það þurfti ekki að leyta á mér eins og öll hin skiptin.....já
þetta virðist ætla að elta mig uppi óheppnin á flugvellinum,
en loksins þá bara gékk þetta vel, vona hreinlega að þetta
verði svona framvegis 
Maður er strax
farinn að undirbúa næstu ferð að ári....skelli inn myndum við
tækifæri, en það voru yfir 1000 myndir teknar 
»
Síður: 1 2 3 ... 22
|
|